Language:

Umhverfið

Hótel Hekla dregur nafn sitt af hinu sögufræga eldfjalli Heklu sem gnæfir yfir Suðurlandið og sést vel frá hótelinu. Hekla er eitt virkasta eldfjall á Íslandi og gaus seinast  26 febrúar 2000 en það var stutt gos sem stóð aðeins yfir í 11 daga. Gosin í Heklu eru tilkomumikil þó þau hafi verið frekar stutt í seinni tíð. Heyrst hefur í sumum gestum hótelsins að ef þeir verði heppnir þá sjái þeir kannski gos á meðan þeir dvelja á Hótel Heklu.

Einnig eru margir áhugaverðustu ferðamanna- og sögustaðir Suðurlands stutt frá Hótel Heklu, s.s. Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Laugarvatn, Hekla, Þjórsárdalur, Þórsmörk, Dyrhólaey, þjóðvegirnir norður Kjöl og Sprengisand svo fátt eitt sé talið.