Hótelið
Hótel Hekla býður gistingu og veitingar fyrir hópa og einstaklinga allt árið. Um hásumarið er mest um erlenda ferðamenn, enda er hótelið vel í sveit sett. Fundaraðstaðan er góð og mikið um smáa og stóra fundi og ráðstefnur allt árið, mest frá Stór-Reykjavíkursvæðinu, enda stutt að fara úr skarkala borgarinnar. Yfir veturinn er mikið um árshátíðir starfsmannafélaga og margskonar námskeiðahald. Hin víðfrægu villibráðar- og jólahlaðborð laða margan að.
Hótel Hekla er eitt besta sveitahótel sunnan heiða, með 36 þægileg og vel búin herbergi, öll með sturtubaði. Hótelið stendur miðsvæðis á Skeiðunum með útsýni til allra átta.
Inn af anddyri hótelsins er hlýleg, vel búin setustofa með bar og notalegum arni. þar njóta gestir þess að sitja í rólegheitum og rabba saman yfir drykk þegar degi tekur að halla. Útaf setustofunni eru svo svalir mót suðri þar sem gott er að slaka á og njóta útsýnisins á sólríkum degi. Einnig er ekki amarlegt að nóta kvöldsólarinnar í heitum potti hótelsins sem er í bakgarði hótelsins.